Sveinbjörn RSS

Persónulegt blogg fyrir Sveinbjörn H. Pálsson.

Archive

Aug
20th
Thu
permalink

Ný bók í Hitch-hikers Guide to the Galaxy seríunni!

Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þetta.

Eoin Coifer, höfundur seríunnar um Artemis Fowl, er búinn að skrifa nýja bók í HHGTTG seríunni. Fyrir þá sem ekki þekkja til seríunnar, þá fjallar hún um jarðarbúa sem fer á flakk um heiminn þegar jörðin er sprengd í loft upp til að rýma til fyrir geim-þjóðbraut. Hann er mest allann tímann ringlaður og pirraður yfir þessu öllu saman, og stór hluti af sjarma bókanna er húmorinn, heimspekilegar vangaveltur höfundar og lítt dulbúin ádeila á mannlegt eðli sem bækurnar eru.

Ég get ekki séð með góðu móti að nokkur maður gæti fylgt í fótspor Douglas Adams, en ég ætla samt að mæta í Eymundsson 12. Október, og ég vona að ég hafi rangt fyrir mér…

http://www.penguin.co.uk/nf/Book/BookDisplay/0„9780718155148,00.html

Comments (View)
blog comments powered by Disqus