2nd
Sunnudagur
Eyddi deginum í fjögra tíma hjólreiðatúr í næsta bæ til að sækja einn sexkant. Fann á leiðinni stórkostlegann arkítektúr, teiknaðann fyrir venjulegt fólk. Ekki oft sem maður sér það. Vel heppnað stórt hverfi augljóslega teiknað af einni hendi sem var annt um verkið sitt og fólkið sem átti svo að búa þarna.
Það er alltaf pínu spes hvað Ikea búðir eru allar eins. Þegar ég er kominn aðeins inn í búðina þá líður mér eins og ég sé í hrauninu við Hafnarfjörð. Fann það í dag, en kannski ekki jafn sterkt og þegar ég fór í Ikea í Kuwait. Weird að vera í þessu umhverfi, alveg eins nema öðruvísi útlítandi fólk, og allur texti á hrognamáli. Var rosa glaður að finna belti sem gerir mér kleift að festa stærra stöff við hjólið mitt til flutninga.
Ég kláraði loksins að innrétta herbergið mitt. Fann fína hillu (alveg eins og gamla hillan mín nema í þægilegri lit) í Schroeder, Góða hirðinum í Den Haag. Sama verð líka. Fjórir sinnum fjórir Expedit hilla sem ég og Hrvoje fluttum heim í gær á lítilli kerru sem við fengum lánað í búðinni. Það er enginn á bíl hérna, þannig að húsgagnakaup stúdentsins miðast við að það sé hægt að labba með draslið heim.
Sit og teikna stafi í herbergi sem er loksins orðið pínu næs. Eða svona gettó-næs. Allt sem ég á er í seilingarfjarlægð. Kemst allt fyrir í einu litlu herbergi. Þegar ég fer héðan verður mest allt eftir. Ætla að halda lífi mínu undir 23 kg næstu misseri.