Sveinbjörn RSS

Persónulegt blogg fyrir Sveinbjörn H. Pálsson.

Archive

Sep
20th
Tue
permalink

Den Haag

Ég var að muna að ég á blogg.

Og að blogg eru til.

Nóg um það.

Ég er búinn að vera í Den Haag síðan um mánaðarmótin. Skólinn hófst af alvöru í síðustu viku. Ég er mest megnis búinn að vera í einhverjum æfingum, að teikna letur með gamaldags blekpenna og með pensli. Ég er að læra mikið af þessum mögnuðu kennurum sem boðið er upp á í þessum skóla, og jafnvel enn meira af samnemendum mínum. Þetta er fáránlega klárt lið. Ég er búinn að fikta í og pæla í leturhönnun í langann tíma, en ég hef aldrei lært jafn mikið nýtt á svona skömmum tíma. Þetta er alveg stórkostlegt.

Svo er ég að læra forritun. Mér hefur langað til þess í svona tvo áratugi, þannig að það er gaman að fá tækifæri til þess. 

Comments (View)
blog comments powered by Disqus