Sveinbjörn RSS

Persónulegt blogg fyrir Sveinbjörn H. Pálsson.

Archive

Dec
8th
Thu
permalink

Engin Pressa: http://t.co/CvNo80Wr via @AddThis

Comments (View)
Dec
5th
Mon
permalink

Put on some handgloves and went out for a hamburge

Comments (View)
Nov
26th
Sat
permalink

We just got an album of Ennio Morricone tracks, performed by Hugo Montenegro, at Marriottestraat. It’s kind of weird listening to this, because the record, and other versions of these tracks, has been sampled so extensively, and tracks used so widely, so I’m hearing more of the references and the samples than the tracks themselves…

Comments (View)
Nov
24th
Thu
permalink

If it is on youtube, I’m not sure you can call it “rare” anymore.

Comments (View)
Nov
20th
Sun
permalink

Some lovely quotes from a comment thread

 

Sometimes short interactions from comment threads can be more insightful than long articles. You can get to a point in just a few words.
- - -

Another victory for the free market. It will adapt to change. Not because of any philanthropic leanings, but just due to a profit motive.

Ben says:

<>

Do you really believe that only the free market can adapt to change (and forced change at that, wich is an effect similar to regulations)?

Societies and the people who make these societies adapt to change regardless of the freedom or even existence of markets.

Comments (View)
Oct
17th
Mon
permalink

Oh this is beautiful - Handlettered logos from defunct department stores : http://t.co/2vMorkZE via @jkottke

Comments (View)
Oct
13th
Thu
permalink

Ó Mæ. Dropbox Pro FOR LIFE! click on this shit and increase my chances (and yours)! http://t.co/JzgD7HHl via @appsumo

Comments (View)
Oct
10th
Mon
permalink

President @BarackObama supports job creation by launching a spec comp. Support the #AntiSpec campaign http://t.co/X8BtGYWo via @inspiredMark

Comments (View)
Oct
6th
Thu
permalink
Your time is limited, so don’t waste it living someone else’s life. Don’t be trapped by dogma - which is living with the results of other people’s thinking. Don’t let the noise of others’ opinions drown out your own inner voice. And most important, have the courage to follow your heart and intuition. They somehow already know what you truly want to become. Everything else is secondary.
— Steve Jobs
Comments (View)
Oct
2nd
Sun
permalink
Hinn hefðbundni hollenski skyndibitastaður kallast &#8220;Snackbar&#8221;. Ég hef bara prófað þannig einu sinni.
Karl Ingi vinur minn varaði mig við því áður en ég kom að hollenskur matur væri hræðilegur. Fyrsta kvöldið sem ég var hérna fór ég út í leit að mat og lenti á stað sem heitir Mr. Ed og var svona Snackbar. Þar var gæji fyrir framan djúpsteikingarpott og bauð upp á allskonar dót, djúpsteikt. Ég prófaði eitthvað sem hét eitthvað furðulegt á hollensku, og franskar með. Þetta var ógreinileg blanda af kjöti, majonesi og osti í raspi djúpsteikt. Einnig buðu þeir upp á &#8220;ostborgara&#8221; þar sem osturinn var inní borgaranum. Ég er ekki mikill aðdáandi snakkbarsins. 
Hér búa margir innflytjendur frá Surinam. Eins og tælenskur matur er ráðandi útlenski maturinn á íslandi, þá er Surinamskur matur aðal þannig hérna. Málið er samt að surinamar koma víðsvegar að úr heiminum, þeir eru kínverjar, indverjar, afrískir, innfæddir/indjánar, brasilískir og ýmislegt annað, þannig að allir svona stafir eru með eitt eða tvö skástrik. Frekar en að vera kínverskur veitingastaður þá er hann t.d. Chinees/Surinaams/Javaans.
Við fórum að frumkvæði Maracka, kærustu Maziyar meðlegjanda mins á súrinamskann stað í gærkvöldi og borðuðum Roti. Þetta er einhver svona indverskur matur, sem maður borðar með mjög þunnu brauði, soldið eins og stór pönnukaka úr tandoori ofni. Þetta var alveg helgott og kostaði 6 evrur. Það er víst hægt að fá góðann mat hér.

Hinn hefðbundni hollenski skyndibitastaður kallast “Snackbar”. Ég hef bara prófað þannig einu sinni.

Karl Ingi vinur minn varaði mig við því áður en ég kom að hollenskur matur væri hræðilegur. Fyrsta kvöldið sem ég var hérna fór ég út í leit að mat og lenti á stað sem heitir Mr. Ed og var svona Snackbar. Þar var gæji fyrir framan djúpsteikingarpott og bauð upp á allskonar dót, djúpsteikt. Ég prófaði eitthvað sem hét eitthvað furðulegt á hollensku, og franskar með. Þetta var ógreinileg blanda af kjöti, majonesi og osti í raspi djúpsteikt. Einnig buðu þeir upp á “ostborgara” þar sem osturinn var inní borgaranum. Ég er ekki mikill aðdáandi snakkbarsins. 

Hér búa margir innflytjendur frá Surinam. Eins og tælenskur matur er ráðandi útlenski maturinn á íslandi, þá er Surinamskur matur aðal þannig hérna. Málið er samt að surinamar koma víðsvegar að úr heiminum, þeir eru kínverjar, indverjar, afrískir, innfæddir/indjánar, brasilískir og ýmislegt annað, þannig að allir svona stafir eru með eitt eða tvö skástrik. Frekar en að vera kínverskur veitingastaður þá er hann t.d. Chinees/Surinaams/Javaans.

Við fórum að frumkvæði Maracka, kærustu Maziyar meðlegjanda mins á súrinamskann stað í gærkvöldi og borðuðum Roti. Þetta er einhver svona indverskur matur, sem maður borðar með mjög þunnu brauði, soldið eins og stór pönnukaka úr tandoori ofni. Þetta var alveg helgott og kostaði 6 evrur. Það er víst hægt að fá góðann mat hér.

Comments (View)
permalink
[Flash 9 is required to listen to audio.]

Sá þennan spila plötur á Today’s Art hátíðinni hér í bæ um síðustu helgi. Það var ógeðslega skemmtilegt sett. Tyrkneskt funk og diskó. Á undan honum spilaði Awsome Tapes from Africa, og sá spilaði, eins og nafnið gefur til kynna, geðveikt fínt dót frá Afríku. Á segulbandsspólum.

Comments (View)
permalink

Sunnudagur

Eyddi deginum í fjögra tíma hjólreiðatúr í næsta bæ til að sækja einn sexkant. Fann á leiðinni stórkostlegann arkítektúr, teiknaðann fyrir venjulegt fólk. Ekki oft sem maður sér það. Vel heppnað stórt hverfi augljóslega teiknað af einni hendi sem var annt um verkið sitt og fólkið sem átti svo að búa þarna.

Það er alltaf pínu spes hvað Ikea búðir eru allar eins. Þegar ég er kominn aðeins inn í búðina þá líður mér eins og ég sé í hrauninu við Hafnarfjörð. Fann það í dag, en kannski ekki jafn sterkt og þegar ég fór í Ikea í Kuwait. Weird að vera í þessu umhverfi, alveg eins nema öðruvísi útlítandi fólk, og allur texti á hrognamáli. Var rosa glaður að finna belti sem gerir mér kleift að festa stærra stöff við hjólið mitt til flutninga.

Ég kláraði loksins að innrétta herbergið mitt. Fann fína hillu (alveg eins og gamla hillan mín nema í þægilegri lit) í Schroeder, Góða hirðinum í Den Haag. Sama verð líka. Fjórir sinnum fjórir Expedit hilla sem ég og Hrvoje fluttum heim í gær á lítilli kerru sem við fengum lánað í búðinni. Það er enginn á bíl hérna, þannig að húsgagnakaup stúdentsins miðast við að það sé hægt að labba með draslið heim.

Sit og teikna stafi í herbergi sem er loksins orðið pínu næs. Eða svona gettó-næs. Allt sem ég á er í seilingarfjarlægð. Kemst allt fyrir í einu litlu herbergi. Þegar ég fer héðan verður mest allt eftir. Ætla að halda lífi mínu undir 23 kg næstu misseri.

Comments (View)
permalink

Man tumblr can be an unstable piece of shit sometimes. Lost a super long blog post I just wrote. Crap.

Comments (View)
Sep
30th
Fri
permalink

Gáfuleg svör við heimskulegum spurningum

Ég sat á bar áðan með bekkjarfélögum. Ég spurði indversku stelpuna “hvað kallið þið indverskann mat í indlandi”? Bæði spurði ég út af því að ég var raunverulega forvitinn að vita hvað svarið gæti verið, en líka út af því að ég hef dálæti á því að spyrja heimskulegra spurninga til að sjá viðbrögðin. 

“Ég meina, hvað kallar þú þetta til að aðgreina þetta frá útlenskum mat, eins og pasta eða hamborgurum… öööh… grænmetisborgurum”?

“Við köllum þetta eftir héröðum.”

Gáfulegt svar. Ég held að ég hafi aldrei hugsað um indverskann mat sem eitthvað sem gæti haft mörg afbrigði. Ég held að ég hafi hreinlega ekki pælt í indverskum mat yfir höfuð, öðruvísi en að hann er ljúffengur.

- - -

Ég er allur að koma til í leturskrift. Ég er örvhentur, og örvhentir skrautskrifarar þykja saga til næsta bæjar. Þetta er hálf lamandi fötlun í þessu fagi. En ég er búinn að finna ýmsar leiðir til að vinna á þessum fæðingargalla, ég skrifa núna niðurávið, eins og kínverjarnir. Ég náði þeim merka áfanga í dag að skrifa heila A3 örk án þess að klúðra neinu stórvægilegu. Að sjálfsögðu tók ég mynd og sendi mömmu. Hún var mjög ánægð.

Eftir því sem ég næ meiri fótfestu í því sem við erum að gera verður námið skemmtilegara og skemmtilegara. 

- - -

Hollendingar eru voða kvöldsvæfir, og þeir eru búnir að ná að smita mig. Ég hef alltaf staðið í þeirri merkingu að ég væri massív B-týpa, en hérna fer maður að geispa um ellefu með allri þjóðinni. 

Ég vaknaði síðasta sunnudagsmorgun um átta og ákvað að fara á Coffee Company og fá mér morgunkaffi. Þegar ég kom þar að voru allir hipsterarnir sem vinna á kaffihúsinu á virkum dögum saman komnir fyrir utan á leiðinni í hjólreiðatúr, geðveikt hressir á sunnudagsmorgni. Ekki merkileg saga kannski en ansi lýsandi fyrir landið.

Comments (View)
Sep
29th
Thu
permalink

Robofont is kinda awsome.

Comments (View)